Hvernig stendur á því að ég er ekki ennþá búinn að stúta mér. Kannski, það getur nú bara verið að ég er of mikil skræfa til þess að standa í svoleiðis. Persónulega vil ég halda fram að ég sé að hugsa um hag fjölskyldu minnar, sem af mikilli skyldurækni þykir gífurlega vænt um mig. Hvernig svo sem stendur á því, þá vill fólk alltaf vera fullt í kringum mig. Það hefur viljað það frá því ég var lítill, svo virðist vera sem það sé eina leiðin sem fólki sé kleift að kynnast mér, og jafvel þá reynir það að komast hjá því.
Á þessum tíma ljóss of friðar reyni ég að láta kyrrt um liggja, en erfitt reynist þegar hugsanir slíkar reyka um hugann. Ég segi að minnsta kosti gleðileg jól og óska ykkur hinns alls besta.
laugardagur, desember 23, 2006
miðvikudagur, júlí 06, 2005
Sweet Home Pornville
Þá er maður kominn heim frá Danmörku og sumarfríið bráðum búið. Keldan búin og einungis mynningar eftir til að ylja manni, góðar mynningar. Gaman að kikja í heimsókn til Jóa og Kristjönu og eyða smá tíma með þeim. Undirbúningur fyrir Kelduna gekk mjög vel og kerran sem við enduðum á að fá okkur var hrein og tær snilld, blessuð sé minning hennar.
Á laugardagskvöldinu, í röðinni á svæðið urðum við öll pissölvuð og endaði Kristjana á því að brjóta næstum á sér höndina í öllum látunum. Eftir mikið erfiði náðum við Jói, með smá hjálp frá Magga, að koma kerrunni á campið okkar, sem var snilldarlega staðsett. Camp International samanstóð að lokum af, Íslendingum, Svíum, Finnum og Könum og svo voru einhverjir Norðmenn við hliðina á okkur.
Fyrstu dagar háðíðarinnar voru mjög góðir, fyrir utan að sólin gerði asnalegt puttafar á bringuna mína, og mikið drukkið en alltaf vaknað á morgnana upp úr 10 kafnandi úr hita.
Tónleikarnir voru flestir geggjaðir, sumir svakalega góðir, aðrir góðir og enn aðrir sæmilegir, en mjög fáir slæmir. Einkar gaman að sjá Cornell, Slash, Ozzy, Snoop og svo auðvitað Patton 5 sinnum (sá hann samt bara 4 sinnum). 4 heil show og svo gestur hjá Rahzel þegar hann var með sitt daginn eftir að þeir voru saman, sem ég frétti að hefði verið geðveikt en ég var fastur á Green Day sem voru með skemmtilegustu tónleika hátíðarinnar að mínu mati. Sá samt sýninguna hjá Rahzel og það var ótrúlegt að fylgjast með manninum koma með öll þessi hljóð á sama tíma, og svo var það bara svalt að fá Patton óvænt inn á svið og sjá þá taka nokkur lög saman. Var samt ekki hrifinn af öllu sem Patton var að gera á hátíðinni, fílaði mig engan veginn þegar hann var að spila með japanska djnum undir nafninu Maldoror, of mikið White Noise.
Þegar maður fer á 48 tónleika er maður ekki að nenna að koma með miklar lýsingar af öllum þannig að ég ætla að stytta það aðeins í það helsta.
Die Anarchistische Abendunterhaltung djözzuðu upp pleisið með stæl, Dwi Mekar hömruðu sig inn í minnið mitt með flottu indónesísku sjóvi, Flogging Molly fékk mig til að vilja detta í það á Írlandi, Velvet Revolver rokkuðu, Sonic Youth gerðu vel, Mugison sló í gegn, Snoop Dogg sýndi hvað það er að vera svalur, Audioslave gerði allt vitlaust, Black Sabbath lét árin ekki hafa áhrif á sig og rokkuðu allsvakalega, Beatsteaks voru yfirþyrmandi góðir, D-A-D gerðu sitt vel, John Digweed sannaði að til er góð House tónlist, Fantômas voru djöfullega góðir, Efterklang voru guðdómlega góðir, Foo Fighters frábærir, New Cool Collective Big Band fönkaðir, Green Day ofsafengin skemmtun, Duran Duran nostalgíu skemmtun, Four Tet mjög gott, Thievery Corporation verulega góðir, The Go! Team smitaði fólk af hressleika sínum, Bloc Party einstaklega góðir, Rahzel var bókstaflega ótrúlega góður, Bright Eyes yndislega góður, Brian Wilson snarklikkaður (en góður), Interpol fínir og Kaada/Patton alveg hreint með því eðlilegasta (samt ekki venjulegt) og besta sem ég hef heyrt frá Patton
Allt í allt var þetta frábær hátíð og hlakka ég mikið til að snúa aftur að ári liðnu.
Jarfinn út!

mánudagur, júní 20, 2005
Hróarskelda!!!
ÉG ER KOMINN Í SUMARFRÍ!!!!!!!!!!!!!!
Þegar maður fer í sumarfrí þá er aðeins eitt að gera, fara til Danmerkur og djamma með Jóa og Kristjönu. Svo er það HRÓARSKELDA!!! Flýg út í fyrramálið og kem svo heim 5. næsta mánaðar, þannig að þið heyrið kannski aftur í mér í vetur.
Er núna bara að bíða meðan tíminn stendur í stað, samt er skrítið að hugsa til þess að maður skuli vera að fara bara á morgun. Átta mig yfirleitt ekki á því að ég sé að fara eitthvað fyrr en löngu eftir að ég er kominn á staðinn.
En nóg af þessu bulli, þarf að fara að pakka niður og svoleiðis.
Jarfinn kveður með kveðju til Keldara.

mánudagur, febrúar 28, 2005
Óskar frændi
Sælt veri fólkið á ný, eftir langa fjarveru frá netvæddri tjáningu þá er Jarfinn mættur á svæðið á ný. Hvað getur hafa verið svo mikilvægur atburður að ég hafi heiðrað ykkur með nærveru minni. Jú, Óskarinn var í nótt og ég var á staðnum, eða hjá Jómba.
Million Dollar Baby tók það með stæl, Clintinn klikkar ekki og Morgan fékk sitt. Hilly var chilly með cousin Oscilly. Sáttur við það allt saman.
Aviator með slatta af minni verðlaunum og kvikmyndatöku og svo Kata fyrir leik sinn sem....Kata.
Enginn Óskar til Sigga, gengur betur næst. Da Jaimster tók blindraverðlaunin, kom á óvart, og tónlistin úr Finnandi Hvergiland var sú besta, besta lagið samt úr Mótorhjóladagbókunum, hmm...., Santana og Anti Bandi góðir saman. Svo ótrúlega vildi til að Hinir Ótrúlegu voru bestir sem og Ryan sem tilbúnar lífverur.
Kalli Káfmann bara góður þarna uppi, 29, 28, 27....
Rokkarinn stóð sig líka bara helvíti vel, snilldar upphafsræða.
Allt í allt þá var þetta bara mjög vel heppnuð sýning, séstaklega þar sem hún var einhverjum 20 mínútum á undan áætlun, felt a little cheated.
Jarfinn kveður í aðra tvo mánuði.

föstudagur, desember 24, 2004
Gleðileg neytenda jól
Ys og þys allan daginn út og inn og út á ný. Stressið nær hámarki og við föllum um okkur kylliflöt og reynum að átta okkur á því hvað það er sem við erum að gleyma,
- pakkar v
- kort v
- taka til v
- ný föt v
- kökur v
- skreyta v
- jólaskapið ............
Í erilsemi skammdegisins gleymum við því sem skipti okkur máli þegar við vorum börn, og þá er ég ekki bara að tala um pakkana ( þó svo að það hafi verið ágætis plús), heldur þá tilfinningu sem maður fékk djúpt í hjartastað þegar maður fann fyrir þeirri ást og umhyggju sem hátíðin hafði í för með sér. Í dag keppast allir við hvern annan um að gefa flottari gjafir, flottari kort, hafa sem hreinast, eiga nýjustu og flottustu fötin, skreyta meyra og betur en aðrir og skiljum svo ekkert í því þegar hátiðin endar og við tókum ekki einu sinni eftir að hún hafi hafist.
Tökum jólunum með ró og spekt, njótum þeirra hvort heldur sem er með öðrum eða minningum um horfna ástvini. Jólin eru tími ástar og friðar og það er tími til að hafa það rólegt, og undirbúningur fyrir jólin á ekki að vera eintómt stress og vesen.
Gleðilega hátíð til allra og vonandi munið þið eftir því sem þið höfðuð gleymt.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Nýr millikafli í lífi mínu
Jæja þá er komið að því að halda á vit ævintýranna.
Ég hef sagt upp störfum hjá Pizza 67 þar sem ég hef verið við störf undanfarin 5 ár og hef störf hjá IGS nú á föstudaginn. Athyglisvert verður að athuga áhrif þessarar breytingar á sálarlíf mitt sem og andlegt ástand og vonast ég til að geta birt niðurstöður þessarar rannsóknar von bráðar.
Jarfinn kveður í bili með von um bætt andlegt ástand samfélags heimsbyggðarinnar.

fimmtudagur, október 07, 2004
Hvað í andskotanum er ég að gera
ég vaki langt fram á nótt að gera gjörsamlega shit & cinnamon.
Kannski tími til kominn að hætta þessu kjaftæði og fara og drepa mig, andlega.
Gerast fullur meðtakandi í hinni kapítalísku svikamyllu sem nauðgar okkur daglega, og við biðjum alltaf um meira, og finna mér almennilega launaða vinnu til að draga endanlega alla andspyrnu úr æðum mínum gegn mannskemmandi gildum samfélagsins.

þriðjudagur, október 05, 2004
Kominn í hóp vitleysinga
þá er komið að því, endalokin.
ég hef fallið í hina djúpu gryfju bloggara og er orðinn einn af hjörðinni.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)