miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Nýr millikafli í lífi mínu

Jæja þá er komið að því að halda á vit ævintýranna.
Ég hef sagt upp störfum hjá Pizza 67 þar sem ég hef verið við störf undanfarin 5 ár og hef störf hjá IGS nú á föstudaginn. Athyglisvert verður að athuga áhrif þessarar breytingar á sálarlíf mitt sem og andlegt ástand og vonast ég til að geta birt niðurstöður þessarar rannsóknar von bráðar.
Jarfinn kveður í bili með von um bætt andlegt ástand samfélags heimsbyggðarinnar.