Ys og þys allan daginn út og inn og út á ný. Stressið nær hámarki og við föllum um okkur kylliflöt og reynum að átta okkur á því hvað það er sem við erum að gleyma,
- pakkar v
- kort v
- taka til v
- ný föt v
- kökur v
- skreyta v
- jólaskapið ............
Í erilsemi skammdegisins gleymum við því sem skipti okkur máli þegar við vorum börn, og þá er ég ekki bara að tala um pakkana ( þó svo að það hafi verið ágætis plús), heldur þá tilfinningu sem maður fékk djúpt í hjartastað þegar maður fann fyrir þeirri ást og umhyggju sem hátíðin hafði í för með sér. Í dag keppast allir við hvern annan um að gefa flottari gjafir, flottari kort, hafa sem hreinast, eiga nýjustu og flottustu fötin, skreyta meyra og betur en aðrir og skiljum svo ekkert í því þegar hátiðin endar og við tókum ekki einu sinni eftir að hún hafi hafist.
Tökum jólunum með ró og spekt, njótum þeirra hvort heldur sem er með öðrum eða minningum um horfna ástvini. Jólin eru tími ástar og friðar og það er tími til að hafa það rólegt, og undirbúningur fyrir jólin á ekki að vera eintómt stress og vesen.
Gleðilega hátíð til allra og vonandi munið þið eftir því sem þið höfðuð gleymt.
föstudagur, desember 24, 2004
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)