mánudagur, febrúar 28, 2005

Óskar frændi

Sælt veri fólkið á ný, eftir langa fjarveru frá netvæddri tjáningu þá er Jarfinn mættur á svæðið á ný. Hvað getur hafa verið svo mikilvægur atburður að ég hafi heiðrað ykkur með nærveru minni. Jú, Óskarinn var í nótt og ég var á staðnum, eða hjá Jómba.
Million Dollar Baby tók það með stæl, Clintinn klikkar ekki og Morgan fékk sitt. Hilly var chilly með cousin Oscilly. Sáttur við það allt saman.
Aviator með slatta af minni verðlaunum og kvikmyndatöku og svo Kata fyrir leik sinn sem....Kata.
Enginn Óskar til Sigga, gengur betur næst. Da Jaimster tók blindraverðlaunin, kom á óvart, og tónlistin úr Finnandi Hvergiland var sú besta, besta lagið samt úr Mótorhjóladagbókunum, hmm...., Santana og Anti Bandi góðir saman. Svo ótrúlega vildi til að Hinir Ótrúlegu voru bestir sem og Ryan sem tilbúnar lífverur.
Kalli Káfmann bara góður þarna uppi, 29, 28, 27....
Rokkarinn stóð sig líka bara helvíti vel, snilldar upphafsræða.
Allt í allt þá var þetta bara mjög vel heppnuð sýning, séstaklega þar sem hún var einhverjum 20 mínútum á undan áætlun, felt a little cheated.
Jarfinn kveður í aðra tvo mánuði.

3 ummæli:

Magnús Sveinn Jónsson sagði...

Þvílíkur dugnaður! En þú ert ekki beint að hvetja mann til að mæta á síðuna með því að lofa nýrri færslu eftir tvo mánuði! En eins og ég er búinn að læra í business í skólanum "it's better to underpromise and overdeliver than overpromise and underdeliver." :D

Nafnlaus sagði...

Hvað er málið! John Lennon er líflegri en þessi bloggsíða!

Nafnlaus sagði...

það getur ekki verið að það gerist svona lítið hjá þér að það sé ekkert til að blogga um.. eða er svo mikið að gerast að það er engin tími til að blogga??