mánudagur, júní 20, 2005

Hróarskelda!!!

ÉG ER KOMINN Í SUMARFRÍ!!!!!!!!!!!!!!
Þegar maður fer í sumarfrí þá er aðeins eitt að gera, fara til Danmerkur og djamma með Jóa og Kristjönu. Svo er það HRÓARSKELDA!!! Flýg út í fyrramálið og kem svo heim 5. næsta mánaðar, þannig að þið heyrið kannski aftur í mér í vetur.
Er núna bara að bíða meðan tíminn stendur í stað, samt er skrítið að hugsa til þess að maður skuli vera að fara bara á morgun. Átta mig yfirleitt ekki á því að ég sé að fara eitthvað fyrr en löngu eftir að ég er kominn á staðinn.
En nóg af þessu bulli, þarf að fara að pakka niður og svoleiðis.
Jarfinn kveður með kveðju til Keldara.

Engin ummæli: