laugardagur, desember 23, 2006

Djöfulsins kjaftæði

Hvernig stendur á því að ég er ekki ennþá búinn að stúta mér. Kannski, það getur nú bara verið að ég er of mikil skræfa til þess að standa í svoleiðis. Persónulega vil ég halda fram að ég sé að hugsa um hag fjölskyldu minnar, sem af mikilli skyldurækni þykir gífurlega vænt um mig. Hvernig svo sem stendur á því, þá vill fólk alltaf vera fullt í kringum mig. Það hefur viljað það frá því ég var lítill, svo virðist vera sem það sé eina leiðin sem fólki sé kleift að kynnast mér, og jafvel þá reynir það að komast hjá því.
Á þessum tíma ljóss of friðar reyni ég að láta kyrrt um liggja, en erfitt reynist þegar hugsanir slíkar reyka um hugann. Ég segi að minnsta kosti gleðileg jól og óska ykkur hinns alls besta.

Engin ummæli: